"Námskeiðshaldari er hafsjór af fróðleik og ég tel það happ mitt að hafa fundið þetta námskeið."

"Afskaplega fræðandi og veglegt námskeið sem fer yfir allt sem verðandi sjálfstæðir höfundar þurfa að vita."

Vertu þinn eigin útgefandi

Sjálfstæð útgáfa fyrir sjálfstæða höfunda


Ert þú með bók sem þú vilt gefa út sjálf/ur en veist ekki hvernig þú átt að byrja?


Hefur gengið illa að koma bókinni þinni að hjá útgefanda, og hefur þú íhugað að taka málin í eigin hendur?


Góðu fréttirnar eru þær að aldrei hefur verið jafn auðvelt að gefa út eigin bók, með litlum eða engum tilkostnaði, eins og í dag.


Lestu áfram 👇

Um námskeiðið

Er ekki kominn tími til að taka málin í eigin hendur og koma bókinni þinni út, þér og öðrum til gagns og yndisauka?


Vertu þinn eigin útgefandi er netnámskeið, og færð þú aðgang að fyrirlestrum og sýnikennslu um leið og greiðsla hefur farið fram.


PDF skjal með ítarefni, gagnlegum upplýsingum og tenglum á veitur og vefsíður sem fjallað eru um á námskeiðinu fylgir með.


Gögnin eru aðgengileg í 1 ár frá kaupum.


Allir þátttakendur fá aðgang að lokuðum Facebook hóp þar sem þeir geta sett inn spurningar og fengið svör og stuðning frá leiðbeinanda og öðrum þátttakendum.


Ekki er þörf á að hafa djúpa þekkingu á stafrænni tækni til að nýta sér upplýsingar sem fram koma á námskeiðinu, en hæfni til að tileinka sér nýja hluti er nauðsynleg.


Þetta námskeið miðast sérstaklega við útgáfu á Íslandi—dreifingu í bókaverslanir, utanumhald um birgðir, en jafnframt hvernig hægt er að nýta erlendar veitur eins og Amazon og fleiri til að gefa út, prenta og dreifa bókum.


Það sem þú munt læra á þessu námskeiði

Námskeiðið samanstendur af 29 myndböndum með upplýsingum og sýnikennslu. Auk þess fylgir handbók með ítarefni og aðgangur að lokuðum Facebook hóp. Meðal þess sem við fjöllum um:


  • Hvernig heimurinn í bókaútgáfu hefur breyst á síðustu 15 árum
  • Kostir og gallar þess að gefa út sjálf/ur
  • Helstu leiðir sem færar eru í sjálfstæðri útgáfu (prent-, raf- og hljóðbækur)
  • Hvernig má gefa út bók án þess að fjárfesta í dýrri prentun
  • Hvað felst í prentun og dreifingu innanlands
  • Hvernig haldið er utan um birgðir í verslunum
  • Hvernig sótt er um ISBN númer
  • Hvernig bók er seld á Amazon eða í gegn um aðrar veitur
  • Hvernig má hanna bækur og bókakápur með einföldum hætti, án tilkostnaðar
  • Hvernig strikamerki er búið til
  • Ítarlegar leiðbeiningar um hvernig á að setja inn bækur hjá Amazon og öðrum veitum
  • Hvernig útbúa má fallega rafbók
  • Skattamál hjá erlendum veitum og og hvernig skal forðast tvísköttun
  • Hvernig útbúa má hljóðbækur og koma þeim í dreifingu
  • Tækifærin á Íslenskum markaði
  • ... og margt, margt fleira

Umsagnir

Fyrir hvern er þetta námskeið?

Námskeiðið er fyrir hvern þann sem hefur áhuga á að kynna sér nýjustu stefnur og tækifæri í bókaútgáfu, hvort sem það er til þess að gefa út sjálf/ur eða fylgjast með afar spennandi þróun í útgáfu bóka. Þú gætir haft gagn af þessu námskeiði ef þú:

Hefur skrifað bók en ekki tekist að komast að hjá útgefanda og vilt taka málin í eigin hendur

Hefur gefið út hjá útgefanda en vilt prófa að gerast sjálfstæður höfundur, t.d. vegna réttindamála eða hærri höfundalauna

Hefur skrifað sögu eða efni sem þú vilt dreifa til afmarkaðs hóps en ekki endilega að fari í almenna sölu, t.d. sögu fjölskyldunnar, eða ritgerð

Ert á vinnustað og vilt útbúa handbók fyrir samstarfsfélaga eða viðskiptavini sem þú vilt dreifa rafrænt eða í prentuðu formi

Hefur skrifað endurminningar þínar sem þú vilt dreifa til afkomenda en vilt ekki setja í almenna sölu

Ert með fyrirtæki eða verslun og vilt dreifa leiðbeiningum eða upplýsingum um notkun ákveðinnar vöru eða afurðar

Sagan mín


Ég heiti Alda Sigmundsdóttir og er sjálfstæður höfundur og útgefandi eigin verka.

Eftir að hafa reynt í mörg ár að landa útgáfusamningi hjá hefðbundnum útgefanda, ákvað ég árið 2010 að taka málin í eigin hendur og gefa verkin mín út sjálf.

Fyrsta bókin mín var einfalt PDF skjal sem ég gaf út í gegn um bloggsíðu sem ég hélt úti. Bók númer tvö var svo gefin út af hefðbundnum útgefanda, en sú reynsla var því miður ekki jákvæð og ákvað ég í framhaldinu að halda mig við sjálfsútgáfu.

Þróunin í heimi sjálfstæðrar útgáfu frá þeim tíma hefur verið mögnuð, og í dag eru til endalaust spennandi tæknilausnir og tækifæri fyrir sjálfstæða höfunda. Enda hefur óteljandi fjöldi einstaklinga um allan heim, sem áður hefðu átt í basli með að komast að hjá hefðbundnum útgefanda, nú tekjur af því að skrifa og gefa út eigin verk.

Ég telst til þeirra, en í dag hef ég gefið út 11 bækur, ýmist í prent-, raf- eða hljóðbókaformi (eða öllum þremur). Auk þess hafa nokkrar bækur mínar verið þýddar á erlend tungumál, og sumar jafnvel notaðar til kennslu í háskólum erlendis.

Draumur minn um að vera starfandi rithöfundur hefur því raungerst á máta sem ég gat alls ekki séð fyrir þegar ég var að senda út endalausar fyrirspurnir til útgefanda hér í den!

Ég kenndi mitt fyrsta námskeið í sjálfstæðri útgáfu hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands árið 2014 og hef fylgst vel með nýjustu straumum og stefnum síðan þá, auk þess að nýta mér margar þeirra.

Ég hlakka mikið til að deila þekkingu minni og reynslu með þér!

Sýnishorn af bókunum mínum

Já takk, ég vil fá aðgang!



Verð: 47.500 38.000


Mörg stéttarfélög niðurgreiða námskeið fyrir félagsmenn

Endilega athugaðu hvort þú átt rétt á endurgreiðslu frá þínu félagi




Örlítið sýnishorn úr námskeiðinu

Ef þetta námskeið stenst ekki væntingar þínar og þú sérð að kaupum loknum það muni ekki nýtast þér,

endilega hafðu samband við okkur innan 14 daga og við finnum út úr því.

ALDA SIGMUNDSDÓTTIR

© 2023 Little Books Publishing